Nal stuttbuxur | utilif.is
ÚtilífOutletThe North Face

Nal stuttbuxur

V011832

Léttar vindheldar stuttbuxur fyrir hvers kyns notkun sem krefst hreyfifrelsis.

Nal stuttbuxurnar eru sveigjanlegar og mjúkar en veita jafnframt rétta vindvörn fyrir bæði hraðar göngur og klettaklifur í hlýrra loftslagi. Stuttbuxurnar eru með tveimur handvösum, bakvasa fyrir verðmæti og stillanlegt mittis belti. Til að auka sýnileika er þríhyrningslaga endurskinsmerki á báðum hliðum. Stuttbuxurnar eru hljóðlátar og léttar, úr bluesign® samþykktu Ultramid® Bio-Mass Balanced Polyamide.

Helstu eiginleikar: 

  • Teygjanlegt net í mitti fyrir öndun
  • Stillanlegt mittisbelti
  • Tveir handvasar
  • Renndur rassvasi fyrir verðmæti
  • Þríhyrningslaga endurskinsmerki á báðum hliðum
  • Léttur rennilás
  • Lykkjur fyrir tengisnúru að aftan

Tilvaldar í:

  • Göngur
  • Hjól
  • Klifur
  • Hraðar hreyfingar

Efnasamsetning:

50% Ultramid® Bio-Mass Balanced Polyamide, 50% Polyamide, 69 g/m²

Pólýamíð eru endingargóðir og sterkir trefjar sem auka endingartíma varanna sem innihalda það. Ultramid® Biomass Balance Polyamide hefur sömu hágæða eiginleika og hefðbundið pólýamíð, en er mun sjálfbærara. Við framleiðslu á Ultramid® Biomass Balance Polyamide er ákveðið magn af jarðefna auðlindum skipt út fyrir samsvarandi magn af endurnýjanlegu hráefni, svo sem lífgasi. Klättermusen fjárfestir eingöngu í 100% endurnýjanlegum hráefnum. Klattermusen er einnig fyrsta útivistarmerkið sem notar þessa trefjar í sinni framleiðslu.

Bluesign® merkið á vörum Klättermusen þýðir að varan uppfyllir ströngustu kröfur um öryggi neytenda með því að nota efni og tækni sem sparar auðlindir og lágmarkar umhverfisáhrif. Klättermusen hefur verið bluesign® kerfisfélagi síðan 2007.

Varan er framleidd án flúor-kolefnis.

Frammistaða:

Þyngd 151g/154g 

Lengd á skálm að innan 21 cm

MFR (Mass Flow Resistance)* MFR 4
Flúorkolefnis laus vara

* Mass Flow Resistance (MFR) kerfið hjálpar þér að ákveða hvaða vind- og vatnsheldni búnaður hentar best fyrir næsta ævintýrið þitt. MFR tekur mið af því hversu auðveldlega loft fer í gegnum efni og hvernig mismunandi loftslag hefur áhrif á líkamshita þinn.

Stærð og snið:

Stöðluð stærð

Þvottur og umhirða:

Þvoið buxurnar í vél við 40°C. Notið þvottaefni án klórs. Straujið við lágan hita. Óhætt að setja í þurrhreinsun.