Um Útilíf
Útilíf er áfangastaður, þar er gott að vera og versla – en er á sama tíma upphaf ævintýra og minninga. Við hvetjum fólk til að fara lengra og stefna að heilbrigðari sál í hraustum líkama, í sátt við umhverfið og samfélagið.
Útilíf á sér stað í hjarta margra Íslendinga þar sem verslunin hefur verið hluti af áhugamálum og lífsstíl landsmanna síðan 1974. Útilíf rekur tvær íþróttaverslanir í Kringlunni og Smáralindinni ásamt útivistarverslun í Skeifunni 11. Þá rekur Útilíf einnig The North Face á Hafnartorgi.
Jafnréttisáætlun Útilífs 2023 - 2026
Stefna Útilífs í jafnréttismálum er að vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna innan vinnustaðarins. Í áætluninni eru sett upp markmið og aðgerðaráætlanir til að ná þessum markmiðum.
Jafnréttisáætlunin gildir fyrir allt starfsfólk Útilífs.
Jafnréttisáætlunin er sett fram samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna nr.150/2020, og annarra laga og krafna er snúa að jafnrétti.
Markmið
Útilíf leggur áherslu á jafnan rétt kynjanna til launa, stöðuveitinga, starfa og þátttöku í nefndum og störfum meðal allra starfsstétta Útilífs. Starfsfólk Útilífs skal enn fremur njóta sömu tækifæra, réttinda og starfsaðstæðna óháð kynþætti, þjóðerni, trúarbrögðum eða öðrum þáttum.
Útilíf vinnur að undirbúningi undir jafnlaunavottun og stefnir að því að öðlast vottun skv. 7 gr. laga nr. 150/2020 um mitt ár 2023. Ár hvert verður unnið að viðhaldsvottun og þriðja hvert ár endurvottun.
Eftirfarandi eru markmið Útilífs:
1. Starfsfólk skal njóta sömu launa og kjara fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf, óháð kyni
2. Starf sem laust er til umsóknar skal standa öllum opið, óháð kyni
3. Lögð er áhersla á að starfsþjálfun og endurmenntun standi öllu starfsfólki til boða, óháð kyni.
4. Lögð er áhersla á að starfsfólk geti samræmt vinnutíma og fjölskyldulíf eins og kostur er.
5. Starfsfólki skal auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna brýnna fjölskylduaðstæðna
6. Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni er ekki liðin á vinnustaðnum.